Ósk um styrk vegna fyrirhugaðs skemmtikvölds 1. maí 2015

Málsnúmer 1502084

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 381. fundur - 24.02.2015

Lagt fram erindi frá forstöðumanni Tjarnarborgar, dagsett 11. febrúar 2015, varðandi fyrirhugaðs skemmtikvölds 1. maí 2015 og styrkbeiðni þar að lútandi. Ætlunin er að tengja viðburðinn við 100 ára kosningarrétt kvenna á Íslandi.

Bæjarráð samþykkir að veita kr. 35 þúsund til leigu á hljóðkerfi og styrk fyrir leigu húss og þrifum samkvæmt gjaldskrá að upphæð kr. 50 þúsund.