Söluheimild - Laugarvegur 39 íbúð 201

Málsnúmer 1502028

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 379. fundur - 10.02.2015

Þar sem húsaleigusamningi vegna Laugarvegar 39 íbúð 201 í Siglufirði hefur verið sagt upp og húsnæðið laust frá 15. mars 2015, óskar deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála eftir heimild til að setja umrædda húseign á sölu með möguleika á skammtímaleigu á meðan á söluferli stendur.

Bæjarráð samþykkir söluheimild fyrir íbúð 201 í Laugarvegi 39 á Siglufirði.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 387. fundur - 09.04.2015

Lagt fram kauptilboð í íbúð 201 að Laugarvegi 39 Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir að gera tilboðsgjafa gagntilboð.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 388. fundur - 14.04.2015

Á 387. fundi bæjarráðs var lagt fram kauptilboð í Laugarveg 39 íbúð 201.
Bæjarráð samþykkti að gera tilboðsgjafa gagntilboð.

Tilboðsgjafi hefur gert mótgagntilboð að upphæð 13,5 millj.

Bæjarráð samþykkir tilboðið.