Siglunes hf - forkaupsréttur sveitarstjórna skv. 12. gr. laga nr. 116/20116 um stjórn fiskveiða

Málsnúmer 1501072

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 377. fundur - 29.01.2015

Í erindi eigenda Siglunes hf, dagsettu 24. janúar 2015 er bæjarfélaginu boðinn forkaupsréttur skv. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða í tengslum við sölu á öllum hlutum í Siglunesi hf til Eignarhaldsfélagsins Ögurs ehf, samkv. kaupsamningi frá 21. janúar 2015.

Bæjarráð harmar að veiðiheimildir séu á leið út úr bæjarfélaginu.

Bæjarráð samþykkir að nýta sér ekki forkauprétt þann sem boðinn er, enda ekki í aðstöðu til þess.
Lagaleg óvissa er fyrir hendi og óútkljáð mál liggja fyrir dómstólum.