Laugarvegur 37 Siglufirði - kaupfyrirspurn

Málsnúmer 1412015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 471. fundur - 25.10.2016

Lögð fram kaupfyrirspurn frá Önnu Kristínu Runólfsdóttur, dagsett 19. október 2016, í íbúð Fjallabyggðar að Laugarvegi 37 Siglufirði.

Bæjarráð upplýsir að Fjallabyggð mun auglýsa íbúðina til sölu með hefðbundnum hætti, þegar núverandi leigjandi ákveður að segja upp húsnæðinu.