Hugmyndir að nýtingu Gagnfræðaskólahússins á Siglufirði

Málsnúmer 1411024

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 366. fundur - 18.11.2014

Lagt fram bréf frá áhugafólki um "Gaggann" dags. 10. nóvember 2014. Í bréfinu kemur fram að haldinn hafi verið fundur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði þann 6. nóvember s.l. um hugmyndir að nýtingu Gagnfræðaskólans við Hlíðarveg á Siglufirði.
Óskað er eftir viðræðum um nýtingu á húsnæðinu gegn vægu gjaldi.

Bæjarráð tekur fram að húsnæðið er í söluferli og því ekki tímabært að ráðstafa því á meðan á því stendur.