Styrkumsóknir 2015 - Fasteignaskattur

Málsnúmer 1409038

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 387. fundur - 09.04.2015

Lagt fram yfirlit fyrir umsóknir félaga og félagasamtaka um styrk til greiðslu fasteignaskatts á árinu 2015.
Í áætlun var gert ráð fyrir kr. 2.500.000.- og leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að styrkir að upphæð kr. 2.470.901 verði samþykktir í samræmi við framlagt yfirlit og reglur Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir að taka reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til endurskoðunar fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2016.