Umsókn um leyfi til að reisa girðingu við Kirkjuveg 12

Málsnúmer 1405045

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 167. fundur - 26.05.2014

Valur Þ. Hilmarsson og Hrafnhildur Ý. D. Vilbertsdóttir eigendur að Kirkjuvegi 12 Ólafsfirði sækja um leyfi til þess að girða á lóðarmörkum í samræmi við aðrar lóðir í götunni.

 

Nefndin samþykkir leyfi fyrir girðingu á suður- og austurhlið en bendir á að samþykki aðliggjandi lóðarhafa þarf ef girða á við norður- og/eða vesturhlið hússins.