Breyting á þjónustusamningi og innleiðing á breyttu töluvumhverfi/hýsingu

Málsnúmer 1405042

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 342. fundur - 27.05.2014

Lagt fram tilboð frá Advania í breytingu á upplýsingstækniþjónustu fyrir Fjallabyggð.
Áætlað er að gera umræddar breytingar í haust.
Kostnaðarbreyting á hýsingarhlutann er rúmlega 33 þúsund kr. án vsk á mánuði.
Áætluð hækkun á hýsingarkostnaði er metin minni en sú hagræðing sem fæst af endurskipulagningu Microsoft leyfismála og notkunar Office 365 skýþjónustunnar.
Ekki þarf að gera breytingar á fjárhagsáætlun er þetta mál varðar.

Bæjarráð samþykkir fram komna breytingu á þjónustusamningi og innleiðingu á breyttu tölvuumhverfi og hýsingu bæjarfélagsins.