Boðsundkeppni Grunnskólanna á landinu - beiðni um styrk

Málsnúmer 1403062

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 336. fundur - 01.04.2014

Sundsamband Íslands mun standa að boðsundskeppni milli grunnskóla sem fram fer um allt land. Úrslitakeppnin fer fram í apríl í Reykjavík.

Markmið keppninnar er að stuðla að aukinni hreyfingu krakka. Sambandið óskar eftir styrkveitingu frá Fjallabyggð.

Bæjarráð hafnar erindinu þar sem Grunnskóli Fjallabyggðar telur sér ekki fært að taka þátt í verkefninu, vegna þess hvað það er seint fram komið.