Skíðafélag Ólafsfjarðar - Umsókn um styrk vegna viðgerðar á snjótroðara

Málsnúmer 1401004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 328. fundur - 07.01.2014

Skíðafélag Ólafsfjarðar sækir um styrk til að lagfæra töluvert viðhald á snjótroðara og vísa í samning að þessu tilefni. Um er að ræða kostnað sem nemur um 765 þúsund krónum.

Bæjarráð telur rétt að endurnýja samninginn og fara yfir málið með stjórn skíðafélagsins er varðar aðkomu bæjarfélagsins að umræddri viðgerð.

Bæjarráð felur deildarstjóra fjölskyldudeildar að halda utanum málið með íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Bæjarráð telur rétt að kanna með aðkomu tryggingarfélagsins er varðar viðgerðarkostnað.