Erindi vegna fyrirhugaðra bílastæða vestan Snorragötu á Siglufirði

Málsnúmer 1310089

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 05.11.2013

Lagt fram bréf frá Síldarminjasafni Íslands ses. dags. 25. október 2013.
Í bréfinu er lagt til að ráðist verði í gerð bílastæða norðan við slökkvistöð bæjarfélagsins á Siglufirði vegna skorts á bílastæðum.

Bæjarráð tekur vel í framkomna tillögu og er hún í samræmi við áform bæjarfélagsins um framvindu verksins á næsta ári.