Ósk um styrk vegna geymslu á kastvélakerrum Skotfélagsins

Málsnúmer 1310085

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 320. fundur - 05.11.2013

Lagt fram bréfi frá Skotveiðifélagi Ólafsfjarðar dags. 29. október 2013, þar sem fram koma óskar um styrk til geymslu á viðkvæmum og rándýrum rafeindabúnaði félagsins.

Bæjarráð samþykkir að taka umræddar kastvélakerrur til geymslu í Aravíti. Um er að ræða ca. 10 m2 geymslusvæði og færist styrkur bæjarfélagsins kr. 52.000.- á móti leigugjaldinu.