Umsókn um aukastyrk vegna útgjalda við sjálfboðaliðahóp "SEEDS"

Málsnúmer 1310012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 317. fundur - 22.10.2013

Skógræktarfélag Siglufjarðar óskar eftir aukastyrk að upphæð kr. 140.000.- til að greiða húsnæði fyrir sjálfboðaliðshóp er dvaldi á þeirra vegum í 14 daga.

Einnig er minnt á og óskað eftir endurskoðun á samstarfssamningi sem áður hefur verið vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2014.

Bæjarráð telur rétt að vísa báðum erindunum til endanlegrar gerðar fjárhagsáætlunar.