Sýslum. - beiðni um umsögn um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer 1307025

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 304. fundur - 16.07.2013

Í erindi Sýslumanns á Siglufirði, dags. 12. júlí 2013, er þess farið á leit við Fjallabyggð, að það veiti skriflega umsögn um umsókn frá Sigríði Maríu Róbertsdóttur um sölu áfengis með matsölu föstudagskvöldið 19. júlí í Bátahúsi Síldarminjasafnsins.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umrætt tækifærisleyfi.