Lýsing á Gullatúni í Ólafsfirði

Málsnúmer 1302059

Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 6. fundur - 21.02.2013

Rætt um þann möguleika að koma fyrir lýsingu á Gullatúninu í Ólafsfirði. Ráðið ætlar ásamt Íþrótta- og tómstundafulltrúa að fara á svæðið og skoða hvað hægt er að gera.

Ungmennaráð Fjallabyggðar - 7. fundur - 27.02.2013

Ungmennaráð fór í vettvangsskoðun á Gullatúnið og kannaði aðstæður. Samkvæmt upplýsingum frá rafvirkja er líklega best að lýsa svæðið frá stökkpallinum, þá þyrfti að leggja rafmagn að pallinum.
Ákveðið var að hafa samband við Rótarý klúbbinn í Ólafsfirði og óska eftir fulltrúa frá þeim á næsta fund ráðsins, þar sem þeir hafa verið með hugmyndir um endurbætur á stökkpallinum.