Umsókn um leyfi til breytinga á Suðurgötu 76

Málsnúmer 1301079

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 149. fundur - 24.01.2013

Þorsteinn Jóhannesson f.h. eiganda hússins Suðurgata 76 sækir um leyfi nefndarinnar til þess að breyta gluggum, einangra og klæða húsið að utan með 50 mm steinull og MEG klæðningu samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

 

Erindi samþykkt.