Framlenging á samningi um vátryggingar sveitarfélagsins

Málsnúmer 1211007

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 276. fundur - 06.11.2012

Tekið fyrir erindi Sjóvár um framlengingu á samningi um vátryggingar sveitarfélagins.

Samkv. 4. grein samnings milli Fjallabyggðar og Sjóvár um vátryggingaviðskipti, sem undirritaður var 14. október 2009, er kveðið á um möguleika á að framlengja samningi til eins árs, tvisvar sinnum. Bæjarráð samþykkir að samningur verði framlengdur.