Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012

Málsnúmer 1210010F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 83. fundur - 14.11.2012

Hafnarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.
• .1 1106045 Flotbryggjur
Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012
Lagðar fram upplýsingar, myndir og heildar reikningur fyrir flotbryggjuna á Siglufirði. Nokkrar umræður urðu um framkvæmdina þar og staðsetningu á flotbryggjum.
Fram kom að athuga þarf með landgang á nýju flotbryggjunni sem virðist vera laus, sem og festar á gömlu flotbryggjunni. Athuga þarf krossfestingar fyrir nýju flotbryggjuna.
Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar hafnarstjórnar staðfest á 83. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012
Lögð fram skýrsla frá fyrirtækinu Neðansjávar ehf. sem og heildarúttekt frá Siglingastofnun dags. í október 2012. Búið er að kynna skýrslur þessar fyrir þingmönnum kjördæmisins sem og Fjárlaganefnd alþingis. Bæjarstjóri hefur óskað eftir fundi með fulltrúum Siglingastofnunar og ráðuneytisstjóra Innanríkisráðuneytis um aðkomu ríkisins að þessu brýna verkefni fyrir Fjallabyggðarhafnir.
Bæjarstjóri lagði einnig fram hugmyndir og tillögur nefndar á vegum hafnarsambandsins er varða slík mál.
Lagt fram til kynningar.
Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar hafnarstjórnar staðfest á 83. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012
Lagt fram til kynningar. Staða og rekstur er í góðu lagi og gefur útkomuspá til kynna að reksturinn verði mun betri en áætlun ársins gerði ráð fyrir.
Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar hafnarstjórnar staðfest á 83. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012
Gjaldskrá yfirfarin af hálfu yfirhafnarvarðar og er tillaga um 4% hækkun og er það í samræmi við verðlagshækkanir.
Samþykkt einróma.
Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar hafnarstjórnar staðfest á 83. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
• Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012
Lagt fram bréf bæjarstjóra er varðar forsendur fyrir áætlunargerð fyrir árið 2012.
Neðanritað var bókað til skoðunar fyrir næsta fund.
Siglufjarðarhöfn.
1. Frágangi við flotbryggju á Siglufirði verði lokið á árinu 2013.
2. Sett verði upp læst hlið inn á flotbryggjuna.
3. Umhverfið við innri höfnina verði lagfært.
4. Athuga þarf með lýsingu á höfnum Fjallabyggðar.
5. Tekið verði frá fjármagn til endurbyggingar á Hafnarbryggju.
Ólafsfjarðarhöfn.
1. Tillaga um flotbryggjuna frá áætlun 2012 verði kostnaðarmetin fyrir næsta fund.
2. Lagfæra þarf þekju í Vesturhöfn - hún verði kostnaðarmetin fyrir næsta fund.
3. Umhverfi Ólafsfjarðarhafnar verði lagfært.
Lögð fram tillaga frá Steingrími Óla Hákonarsyni.
Meirihluti hafnarstjórnar leggur áherslu á neðanritað eftir umræður um framkomna tillögu.
1. Lögð er áhersla á að Siglufjarðarhöfn verði aðalhöfn Fjallabyggðar.
2. Ólafsfjarðarhöfn verði viðhaldið sem leguhöfn og smábátahöfn.
3. Hafnarbryggja á Siglufirði verði lagfærð í tveimur áföngum.
4. Núverandi hafnarsvæði í Ólafsfirði og á Siglufirði verði tekið til endurskoðunar og skipulagningar m.t.t. framkominna hugmynda.
5. Hafnarstjórn leggur áherslu á að styrkja ímynd Fjallabyggðar sem útgerðarbæjar.
Gunnar Reynir Kristinsson telur sig ekki geta samþykkt ofanritaðar áherslur meirihluta hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn samþykkir framkomnar tillögur í rekstri en mun skoða fjárfestingarliði til næsta fundar.
Bókun fundar

Til máls tók Ingvar Erlingsson.
Eftirfarandi tillaga samþykkt með 6 atkvæðum gegn 3 atkvæðum.
Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Gauti Sveinsson og Sólrún Júlíusdóttir voru á móti.
"Ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag reksturs og uppbyggingar hafnarmannvirkja í Fjallabyggð verður tekin þegar niðurstöður stjórnsýsluúttektar liggja fyrir í maí 2013".<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

• Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 43. fundur - 29. október 2012
Lögð fram til kynningar fundargerð 351. fundar frá 15. október 2012.
Bókun fundar Afgreiðsla 43. fundar hafnarstjórnar staðfest á 83. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.