Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Málsnúmer 1205011F
Vakta málsnúmer
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Lögð fram ábending frá nemendum 5. bekkjar GF á Siglufirði, í tengslum við umhverfisdag, um það sem betur mætti fara í kringum gámasvæðið á Siglufirði.
Bæjarráð þakkar gott bréf og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögu að úrbótum.
Bókun fundar
<DIV>Til máls tóku Margrét Ósk Harðardóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson.<BR>Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.</DIV>
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Tilgangur Styrktarsjóðs EBÍ er að styrkja með fjárframlögum sérstakar athuganir og rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, og fræðslu - og menningarmálum aðildarsveitarfélaga.
Aðildarsveitarfélögum EBÍ er gefinn kostur á að senda inn eina umsókn í sjóðinn vegna sérstakra framfaraverkefna. Umsóknarfrestur er til ágústloka.
Bæjarráð felur deildarstjórum að kanna með verkefni sem hæfa umsóknarskilmálum.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Í erindi slökkviliðsstjóra er farið yfir stöðu tækjabúnaðar slökkviliðs og mögulega ráðstöfun endurgreiðslu virðisaukaskatts til endurnýjunar.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til apríl 2012 fyrir A- og B-hluta sveitarfélagsins svo og málaflokkayfirlit.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Lögð fram stofnfundargerð Leynings ses. frá 20. maí s.l.
Stjórnarmaður fyrir hönd sveitarfélagsins er bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Bæjarráð leggur til að varamaður verði forseti bæjarstjórnar, Ingvar Erlingsson.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um rekstrarkostnað grunnskóla frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og minnisblað fræðslu- og menningarfulltrúa.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin dagana 27. og 28. september nk. í Reykjavík, sem er nokkru fyrr en áður.
Bæjarráð samþykkir að bæjarráðsfulltrúar sæki ráðstefnuna, ásamt bæjarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við fulltrúa félagsins um tímasetningu næsta aðalfundar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um fjármálafyrirtæki (sparisjóðir), 762. mál.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn 1. júní n.k. í Miðgarði, Skagafirði.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi gjaldskrá tjaldsvæða í Fjallabyggð 2012:
800,- krónur á mann.
600,- krónur fyrir öryrkja og eldri borgara.
Frítt fyrir börn undir 12 ára. Rafmagn krónur 400,- nóttin.
Þvotta- og þurrkaðstaða kostar 500,- krónur.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Bæjarráð samþykkir tillögu um að upplýsingamiðstöð í Ólafsfirði verði staðsett í Náttúrugripasafninu, og að starfsmaður þar með auknu starfshlutfalli taki einnig að sér umsjón með tjaldsvæðinu í Ólafsfirði.
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 259. fundur - 31. maí 2012
Bæjarráð samþykkir erindi um viðbótarfjárveitingu vegna sérstakra þarfa námsmanna til sumarstarfa.
Sótt er um fjárveitingu í tvo mánuði á tímabilinu júní til ágúst 2012.
Fjármagn sem til þarf er 1.040.000,- (laun 800 þús. launat.gj 240. þús.)
Bókun fundar
Afgreiðsla 259. fundar bæjarráðs staðfest á 79. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.