Málefni 66. fundar bæjarstjórnar

Málsnúmer 1109060

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 66. fundur - 14.09.2011

Forseti bauð bæjarfulltrúa, embættismenn og gesti velkomna á fyrsta fund eftir sumarfrí.
Forseti upplýsti í upphafi fundar að Sólrún Júlíusdóttir hefði tilkynnt úrsögn úr Framsóknarfélagi Fjallabyggðar og að hún kæmi til með að starfa sem óháður bæjarfulltrúi.
Guðmundur Gauti Sveinsson hefur tekið sæti í bæjarstjórn í forföllum Halldóru Salbjargar Björgvinsdóttur.
Á þessum fundi tók Magnús A. Sveinsson sæti S. Guðrúnar Hauksdóttur.
Breyting er á útsendri dagskrá á þann hátt að út fellur dagskráliður 2, fundur bæjarráðs sem fyrirhugaður var 13. september, er frestaðist og 11. dagskrárliður um endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011.
Fundargerðir bæjarráðs frá 217. fundi til og með 227. fundar voru til kynningar svo og þær fundargerðir nefnda sem hlutu fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.