Byggðakvótaúthlutun fyrir fiskveiðiárið 2010-2011

Málsnúmer 1102110

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 203. fundur - 22.02.2011

Sverrir Ólason óskar eftir að geta sótt um hlutdeild í byggðakvóta þeim sem úthlutað er til Siglufjarðar fyrir þetta fiskveiðiár.

Erindið of seint fram komið þar sem frestur til að sækja um sérreglur rann út í janúar sl.

Bæjarráð hvetur bréfritara til að sækja um úthlutun á byggðarkvóta til Fiskistofu.