Áætluð úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2011

Málsnúmer 1012059

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 196. fundur - 20.12.2010

Lögð fram til kynningar áætluð úthlutun framlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2011.  Í hlut sveitarfélagsins er áætlað að komi 10,2 millj.kr.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 223. fundur - 26.07.2011

Lagt fram bréf frá Innanríkisráðuneyti, dags. 15. júlí. Í bréfinu kemur fram endanlegt framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum Fjallabyggðar.

Framlagið verður 10.170.000.- í stað 9.720.000.- sem gert var ráð fyrir í áætlun ársins.