Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu ríkisstyrks til áætlunarflugs

Málsnúmer 1011068

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 191. fundur - 16.11.2010

Í erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis er tilkynnt að ráðuneytið hafi til skoðunar að styrkja ekki lengur áætlunarflug til Sauðárkróks.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir viðræðum um framtíðarskipulag almenningssamgangna til sveitarfélagsins.
Ljóst er að gera þarf tímabundnar ráðstafanir þar til heildarstefna liggur fyrir.