Slökkvistöð í Ólafsfirði - Hækkun á gólfi og bílskúrsdyrum

Málsnúmer 1010083

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 101. fundur - 25.10.2010

Lögð er fram verklýsing og tilboðsskrá sem ætlað er að vera grundvöllur verðkönnunnar vegna stækkunar á dyraopi fyrir nýjan slökkvibíl í Ólafsfirði.  Samhliða hækkun dyraopsins þarf að saga steypta plötu og smíða berandi þak yfir gatið.

Nefndin samþykkir erindið og felur byggingafulltrúa að skoða nánari útfærslu framkvæmdarinnar.