Staða heilbrigðismála í Fjallabyggð

Málsnúmer 1010020

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 54. fundur - 07.10.2010

Forseti bæjarstjórnar bauð bæjarfulltrúa og gesti velkomna á aukafund bæjarstjórnar til að ræða niðurskurð á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar.
Gestir fundarins voru þeir Konráð Baldvinsson framkvæmdarstjóri HSF, Rúnar Guðlaugsson framkvæmdarstjóri Hornbrekku, Valþór Stefánsson framkvæmdastjóri lækninga HSF og Anna Gilsdóttir framkvæmdarstjóri hjúkrunar HSF.
Farið var yfir minnisblöð þeirra sem lögð voru fram á fundinum.
Eftir nokkrar umræður var gestum þökkuð fundarseta, yfirferð minnisblaða og góðar skýringar.

  • Bæjarfulltrúar hafa miklar áhyggjur af fyrirhuguðum breytingum á þjónustu við bæjarbúa og ljóst er að svo miklar breytingar til lækkunar á framlögum ríkisins mun hafa veruleg áhrif á mikilvæg störf í Fjallabyggð.

  • Bæjarstjórn lýsir yfir fullum stuðningi við þessar tvær mikilvægu stofnanir í Fjallabyggð og mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði. Bæjarstjóra var falið að semja sérstaka bókun fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

  • Bæjarstjórn mun fylgjast náið með framvindu umræðna á Alþingi um fjárveitingar til þessara stofnanna við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2011 og mun árétta sjónarmið Fjallabyggðar á fundi með fjárlaganefnd 15.10.2010.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 55. fundur - 13.10.2010

Eftirfarandi bókun var samþykkt með 9 atkvæðum.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar mótmælir harðlega boðuðum niðurskurði á heilbrigðisþjónustu í Fjallabyggð og því að um 80% af niðurskurði á heilbrigðisþjónustu á landsvísu eigi sér stað utan höfuðborgarsvæðisins. Ekki hefur áður verið vegið jafn harkalega að heilbrigðisþjónustu við íbúa minni sveitarfélaga á landsbyggðinni.

 

Niðurskurðurinn mun hafa mjög neikvæð áhrif á heilbrigðisþjónustu í sveitafélaginu. Kostnaður sjúklinga og aðstandenda við að sækja þjónustuna mun og hækka verulega. Vandséð er hver ávinningur verður af boðuðum breytingum og átelur Bæjarstjórn Fjallabyggðar vinnubrögð Ríkisstjórnarinnar í þessu máli.

 

Bæjarstjórn Fjallabyggðar telur vænlegra til árangurs við núverandi aðstæður að vinna að samvinnu og/eða sameiningu heilbrigðisstofnananna á landsbyggðinni með það fyrir augum að verja heilbrigðisþjónustuna en lækka jafnframt sameiginlegan kostnað.