Ósk um ferðastyrk vegna keppnisferða 4. flokks kvenna KS/Leifturs til Svíþjóðar

Málsnúmer 1005061

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 173. fundur - 16.06.2010

Í erindi KS/Leifturs er lögð fram ósk um ferðastyrk vegna keppnisferðar 4. flokks kvenna til Gautaborgar í Svíþjóð á Gothia-cup, stærsta mót sinnar tegundar.

Bæjarráð getur ekki orðið við þessari beiðni, þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu verkefni á fjárhagsáætlun.
Jafnframt er vakin athygli á því að félögin sæki um styrk næst þegar auglýst verður eftir þeim.