Kynningarfundur og boð um samstarf vegna væntanlegrar tilfærslu þjónustu við fatlaða til sveitarfélaga

Málsnúmer 1002104

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 161. fundur - 25.02.2010

Bæjarráð samþykkir að vísa erindi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um kynningarfund og samstarf vegna væntanlegrar tilfærslu þjónustu fatlaðra til sveitarfélaga, til félagsmálanefndar.

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 39. fundur - 10.03.2010

Erindi frá Akureyrarbæ þar sem fram kemur að Akureyrarbær er tilbúinn til samstarfs við nágrannasveitarfélögin um myndun þjónustusvæðis á grunni þeirrar leiðar sem kölluð er ,,þjónustusamningur við leiðandi sveitarfélag."  Boðið verður upp á kynningar á starfsemi málefna fatlaðra á vegum Akureyrarbæjar um miðjan marsmánuð.  Formaður félagsmálanefndar mun sækja kyningarfundinn.