Reglur um snjómokstur í Fjallabyggð
Snjómokstur og hálkueyðing.
Markmið með snjómokstri og hálkueyðingu er að minnka þau óþægindi sem snjór og ís valda einstaklingum, fyrirtækjum og
skólahaldi.
Framkvæmdaaðili snjómoksturs f.h. sveitarfélagsins er bæjarverkstjóri sem skipuleggur hann í samráði við deildarstjóra
tæknideildar.
Utan þéttbýlis
Vegagerðin er veghaldari utan þéttbýlis og sér um að ráða verktaka til að sinna snjómokstri á vegum þar. Í vissum
tilfellum deila sveitarfélagið og Vegagerðin með sér kostnaði af snjómoksti á vegum utan þéttbýlis. Bæjarverkstjórar hafa
samband við Vegagerðina þegar ástæða er til vegna snjómoksturs utan þéttbýlis.
Þéttbýli
- Mokstur hefst á forgangi 1 eða rauðum götum. Í forgangi 1 felst að gera fært um helstu leiðir í þéttbýliskjörnunum. Stefnt
skal að því að fært sé eftir rauðum götum kl. 8:00 á virkum dögum, þannig að fært sé að skólum
leikskólum, slökkviliðsstöðvum, heilbrigðisstofnunum, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum
bæjarbúum.
- Götur í forgangi 2, grænar götur, eru næstar í röðinni og að lokum verða götur í forgangi 3, gular götur, mokaðar.
Verklok á þessum tveimur verkþáttum er óviss og hafa bæjarverkstjórar frjálsræði í hvaða röð göturnar eru
mokaðar.
- Göngustígar og plön, blálituð á korti, eru mokuð samkvæmt ákvörðun bæjarverkstjóra og skal hann hafa að
leiðarljósi þörfina á mokstri á viðkomandi stöðum.
- Samhliða snjómokstri eru almenningsbílastæði í miðbænum mokuð enda gerð þeirra kostuð af sveitarfélaginu.
- Plön og heimkeyrslur við íbúðarhús og fyrirtæki eru ekki mokuð á kostnað sveitarfélagsins.
- Mokstur vegna öryrkja er við sérstakar aðstæður framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar.
- Reynt er að lágmarka umferð snjómoksturstækja við skóla á mesta umferðartíma barna til og frá skóla.
- Mokstur í íbúðargötum skal að jafnaði fara fram á tímabilinu kl. 06-23.
- Fjallabyggð greiðir ekki kostnað vegna snjómoksturs sem til hefur verið stofnað án samþykkis, nema ef beiðni um mokstur kemur frá lögreglu,
slökkviliði, læknum eða sjúkraflutningsmönnum vegna neyðartilvika, skal þá strax sinna því. Ofantöldum er heimilt að kalla
út tæki án samþykkis bæjartæknifræðings eða bæjarverkstjóra og er verktökum kunnugt um það.
Hafa ber í huga að reglur þessar eru viðmiðunarreglur og ber að líta á þær sem slíkar. Fátt er jafn breytilegt og veðurfar
og snjóalög.
Skipulag snjómoksturs í
Ólafsfirði
Skipulag snjómoksturs í Siglufirði