Ungmennaráð Fjallabyggðar

20. fundur 06. febrúar 2019 kl. 15:15 - 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Birna Björk Heimisdóttir aðalmaður
  • Helgi Már Kjartansson aðalmaður
  • Ronja Helgadóttir aðalmaður
  • Jón Pétur Erlingsson aðalmaður
  • Dagný Lára Heiðarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála

1.Gjaldskrá íþróttamiðstöðva 2019

Málsnúmer 1901080Vakta málsnúmer

Breytingar á gjaldskrá íþróttamiðstöðva varðandi aðgang unglinga að líkamsrækt og nemaafslátt kynntar fyrir Ungmennaráði. Ungmennaráð fagnar þessum breytingum.

2.Frístundastyrkir Fjallabyggðar - reglur

Málsnúmer 1611062Vakta málsnúmer

Farið yfir reglur um frístundastyrki Fjallabyggðar fyrir árið 2019. Um síðustu áramót hækkuðu styrkir úr 30.000 kr í 32.500 kr. Ungmennaráð fagnar því að styrkurinn hafi hækkað um síðustu áramót og vonar að hann muni hækka meira á næstu árum. Ungmennaráð segir að barnmörgum fjölskyldum muni verulega um að geta nýtt frístundaávísanir við greiðslu á tónlistarnámi og íþróttaiðkun barna.

Fundi slitið - kl. 16:00.