Kaffi Rauðka

Kaffi Rauðka stendur við smábátahöfnina á Siglufirði. Kaffi Rauðka er pizzastaður, bar, tónleikastaður og frábær veislusalur staðsettur í hjarta Siglufjarðar við smábátahöfnina. Við gerum eldbakaðar pizzur úr lífrænu hveiti með fyrsta flokks áleggi.

Á sumrin er hægt að spila strandblak og minigolf á útisvæði Rauðku.  Á Kaffi Rauðku eru reglulega tónleikar, viðburðir, veislur og ráðstefnur allt árið um kring. Í norðurenda staðarins er glæsilegur veislu- og tónleikasalur. Á efri hæðinni er einnig notarlegur salur sem hentar fyrir minni fundi eða aðrar samkomur.

Heimasíða Kaffi Rauðku