Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

131. fundur 22. febrúar 2012 kl. 17:00 - 18:00 í fundarherbergi í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Magnús Albert Sveinsson varaformaður
  • Helga Jónsdóttir varamaður
  • Ingvi Óskarsson varamaður
  • Kristjana Rannveig Sveinsdóttir varamaður
  • Valur Þór Hilmarsson garðyrkju- og umhverfisfulltrúi
  • Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri Tæknideildar
Fundargerð ritaði: Valur Þór Hilmarsson Umhverfisfulltrúi

1.Eyrargata 18 - skemmdir á húsi

Málsnúmer 1201017Vakta málsnúmer

Fyrir hönd húseigenda að Eyrargtu 18 Siglufirði, óskar Eiríkur Arnarson eftir viðræðum við sveitarfélagið um tjón á umræddri húseign sem talið er að hafi orðið á húseigninni við framkvæmdir á götum í kringum húsið.

Lagt er fram minnisblað vegna skoðunar á húseigninni Eyrargata 18, Siglufirði.

Nefndin hafnar erindinu og felur tæknideild að senda húseigenda minnisblað sem lagt var fyrir fundinn.

2.Umsókn um búfjárhald

Málsnúmer 1201071Vakta málsnúmer

Hjörtur Hjartarson óskar eftir leyfi til að halda fimm hesta í Fákafni 17, Siglufirði.

Erindi samþykkt.

3.Umsókn um búfjárhald

Málsnúmer 1202002Vakta málsnúmer

Guðný Eygló Baldvinsdóttir óskar eftir leyfi til að halda þrjá hesta í Fákafeni 7, Siglufirði.

Erindi samþykkt

4.Þjónustuskilti í Fjallabyggð

Málsnúmer 1202020Vakta málsnúmer

Lagt er til að sett verið upplýsingaskilti fyrir ferðafólk miðsvæðis í bæjarkjörnunum. Á skiltinu verða annarsvegar bæjarkort með upplýsingum um þjónustu í bænum s.s. gistingu, veitingar, afþreyingu, heilsugæslu o.fl. og hinsvegar verði yfirlitskort af firðinum með merktum göngu- og útivistamöguleikum. Jafnframt er lagt til að skoðað verði að setja upp sérstakt auglýsingaskilti þar sem þjónustuaðilar gætu keypt sér auglýsingarými.

Nefndin lýsir ánægju sinni með framkomnar hugmyndir og vísar erindinu til bæjarráðs vegna fjármögnunar.

5.Sala á jörðinni Þóroddsstöðum

Málsnúmer 1202076Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar

6.Ungmennaráð Fjallabyggðar tekur til starfa

Málsnúmer 1202033Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.