Öldungaráð Fjallabyggðar

1. fundur 29. mars 2019 kl. 12:00 - 13:20 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir aðalmaður, D lista
  • Ingvar Ágúst Guðmundsson aðalmaður
  • Konráð Karl Baldvinsson aðalmaður
  • Björn Þór Ólafsson aðalmaður
  • Ásdís Pálmadóttir aðalmaður
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Anna S. Gilsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri fjölskyldudeildar
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson

1.Skipun öldungaráðs 2019

Málsnúmer 1901102Vakta málsnúmer

Umræður um samþykkt öldungaráðs.

2.Kosning varaformanns öldungaráðs

Málsnúmer 1903082Vakta málsnúmer

Tillaga koma fram um Konráð Karl Baldvinsson sem varaformann öldungaráðs.
Tillagan samþykkt samhljóða.

3.Starfsemi öldungaráðs 2019

Málsnúmer 1903080Vakta málsnúmer

Undir þessum lið var rætt um áherslur og hlutverk öldungaráðsins.
Anna Gilsdóttir sagði frá fyrirhuguðu verkefni heilsugæslunnar sem er heilsueflandi heimsóknir til íbúa 80 ára og eldri í Fjallabyggð. Gert er ráð fyrir að verkefnið fari af stað með haustinu.
Gert er ráð fyrir að næsti fundur ráðsins verði haldinn 24. maí.

4.Heilsueflandi samfélag - staðan og næstu skref

Málsnúmer 1804004Vakta málsnúmer

Á fundinn mætti Ríkey Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála. Ríkey sagði frá störfum stýrihóps um heilsueflandi samfélag sem snýr að áherslum í líkamsrækt eldri borgara.

5.Húsnæðisáætlun Fjallabyggðar

Málsnúmer 1807011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

6.Reglur um heimaþjónustu Fjallabyggðar

Málsnúmer 1901058Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 13:20.