Hafnarstjórn Fjallabyggðar

71. fundur 30. júní 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Ragnheiður H Ragnarsdóttir varaformaður, F lista
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson aðalmaður, D lista
  • Sverrir Sveinsson áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Þorsteinn Þorvaldsson varamaður, D lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Bryggja eða annað hafnarlægi á dýpkuðu svæði við Hótel Sigló

Málsnúmer 1506065Vakta málsnúmer

Róbert Guðfinnsson fyrir hönd Selvíkur óskar eftir að ekki verði komið fyrir bryggju eða öðru hafnarlægi á dýpkuðu svæði við Hótel Sigló skv. meðfylgjandi teikningu án samráðs og samþykkis eiganda.

Hafnarstjórn samþykkir erindið.

2.Flotbryggjur

Málsnúmer 1401114Vakta málsnúmer

Lögð fram yfirlýsing frá starfsmanni Hafbor ehf um ástand flotbryggja sem endurnýjaðar voru á Ólafsfirði. Kafað var undir bryggjurnar og er niðurstaðan að miðað við aldur og notkun eininganna eru þær í ágætis ástandi.

Þrjár einingar hafa verið settar niður í Ólafsfirði, ein eining fyrir olíuafgreiðslu við Óskarsbryggju, ein við Hótel Sigló og ein milli Ingvarsbryggju og fiskmarkaðar Siglufjarðar.

3.Kynning á starfsemi Reiknistofu fiskmarkaða hf.

Málsnúmer 1506022Vakta málsnúmer

Lagður fram bæklingur til kynningnar á starfsemi Reiknistofu fiskmarkaða hf með ósk um aukna samvinnu fiskmarkaða við sveitarfélög landsins um hin ýmsu mál.

Lagt fram til kynningar.

4.Um íslenskt hafnríkiseftirlit

Málsnúmer 1506068Vakta málsnúmer

Fiskistofa vekur athygli löndunarhafna á breyttum reglum sem fela í sér aukið hafnríkiseftirlit vegna landana erlendra skipa frá og með 1. júlí næstkomandi.

Lagt fram til kynningar.

5.Sjósetning smábáta

Málsnúmer 1506069Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að staðsetningu á ramp fyrir sjósetningu smábáta á Siglufirði.

Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að koma með tillögu að staðsetningu fyrir sjósetningu smábáta á Siglufirði.

6.Öryggi á hafnarsvæðum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1506050Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að merkingu á hafnarsvæði til að tryggja öryggi innan hafnarsvæðis, einnig tillaga að skiltum vegna lokunar meðan löndun stendur yfir.

Hafnarstjórn samþykkir framlagðar tillögur til reynslu.

7.Flotbryggja á milli Togarabryggju og Ingvarsbryggju

Málsnúmer 1501095Vakta málsnúmer

Á 398. fundi bæjarráðs var samþykkt að vísa málinu aftur til hafnarstjórnar með áherslu á að öryggismál og staðsetning sé fullnægjandi.

Hafnarstjórn ítrekar fyrri bókun, að setja flotbryggjuna til reynslu sumarið 2015.
Samþykkt samhljóða.

8.Endurbygging Bæjarbryggju á Siglufirði

Málsnúmer 1505028Vakta málsnúmer

12 júní s.l. voru opnuð hjá Ríkiskaup tilboð í stálþil og festingar vegna Siglufjörður - Bæjarbryggja, endurbygging. Lægsta tilboð var um 81,4 mill. kr án vsk, en innifalið er flutningur og afhending á staðnum.
Lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda (GA ehf) á grundvelli tilboðsins.

Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði GA smíðjárn.

9.Mengun skipa í höfnum

Málsnúmer 1506020Vakta málsnúmer

Umhverfisstofnun vekur athygli á, að samkvæmt reglugerð nr. 124/2015 sem tók gildi í febrúar á þessu ári skulu skip sem liggja við bryggju nota rafmagn úr landi í stað skipaeldsneytis eftir því sem kostur er. Hins vegar ef ekki er möguleiki á að nota rafmagn úr landi er gerð sú krafa að ekki skuli nota skipaeldsneyti með meira brennisteinsinnihald en 0,1%(m/m). Þessi krafa er gerð til að stuðla að bættum loftgæðum og draga úr mengun.

10.Landaður afli í Fjallabyggðarhöfnum 2015

Málsnúmer 1503085Vakta málsnúmer

Landaður afli á tímabilinu 1. janúar 2015 til 24. júní 2015.
Siglufjörður 8505 tonn í 1123 löndunum.
Ólafsfjörður 393 tonn í 374 löndunum.
Samanburður við sama tíma fyrir árið 2014 er.
Siglufjörður 7637 tonn í 1357 löndunum.
Ólafsfjörður 508 tonn í 373 löndunum.
Lagt fram til kynningar.

11.Rekstraryfirlit apríl 2015

Málsnúmer 1506007Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstaryfirlit hafnarsjóðs fyrir apríl 2015.
Niðurstaða fyrir tímabilið er 4,2 millj. umfram tímabilsáætlun. Rauntölur 0,4 millj. en tímabilsáætlun -3,8 millj.

Lagt fram til kynningar.

12.Orlof starfsmanna í Fjallabyggðarhöfnum

Málsnúmer 1506100Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fyrirhuguð orlofstaka hafnarvarða.

13.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2015

Málsnúmer 1501068Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 375. fundar Hafnasambands Íslands 2015.

14.Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga - 2015

Málsnúmer 1501083Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 19. og 20. fundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2015.

Fundi slitið.