Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

42. fundur 04. september 2017 kl. 17:00 - 19:10 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hjördís Hanna Hjörleifsdóttir aðalmaður, D lista
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varaformaður, S lista
  • Ríkharður Hólm Sigurðsson aðalmaður, S lista
  • Helga Hermannsdóttir aðalmaður, S lista
  • Rósa Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála

1.Ársskýrsla Grunnskóla Fjallabyggðar skólaárið 2016-2017

Málsnúmer 1708066Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sátu fundinn Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og Sólveig Rósa Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Ársskýrsla Grunnskóla Fjallabyggðar 2016-2017 lögð fram. Skólastjóri gerði grein fyrir því helsta í skýrslunni.

2.Reglur um skólaakstur í Fjallabyggð

Málsnúmer 1201028Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sátu fundinn Jónína Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og Sólveig Rósa Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Reglur um skólaakstur í Fjallabyggð, sem samþykktar voru í bæjarstjórn 5. mars 2012 voru lagðar fram. Í reglunum kemur fram að þær skuli endurskoða í upphafi hvers skólaárs. Nefndin leggur til að reglurnar verði óbreyttar að svo stöddu.

3.Málefni Íþróttamiðstöðva í Fjallabyggð haust 2017

Málsnúmer 1708068Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar.
Forstöður fór yfir starfsmannahald og starfsemi í íþróttamiðstöðvum.

4.Úthlutun frítíma í Íþróttamannvirkjum Fjallabyggðar veturinn 2017-2018

Málsnúmer 1708069Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar.
Forstöðumaður fór yfir úthlutun frítíma til UÍF fyrir veturinn 2017-2018 og aðra nýtingu á íþróttahúsum Fjallabyggðar.
Fræðslu- og frístundanefnd ítrekar að tímar í íþróttahúsum eftir klukkan 19.00 eru gjaldskyldir.

5.Ytra mat á Leikskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1610083Vakta málsnúmer

Ytra mat á Leikskóla Fjallabyggðar er hafið. Verið er að safna saman þeim gögnum sem starfsmenn Menntamálastofnunar hafa óskað eftir. Fulltrúar Menntamálastofnunar munu vera á vettvangi, í Leikskóla Fjallabyggðar 25.- 28. september n.k. Í þeirri heimsókn verða tekin rýnihópaviðtöl við starfsfólk, foreldra og börn í elsta árgangi ásamt því að fylgjast með daglegu starfi skólans.

Fundi slitið - kl. 19:10.