Bæjarstjórn Fjallabyggðar

162. fundur 20. maí 2018 kl. 14:30 - 16:30 í Íþróttahúsinu Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar, D-lista
  • Steinunn María Sveinsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar, S-lista
  • Jón Valgeir Baldursson bæjarfulltrúi, B lista
  • Helga Helgadóttir forseti bæjarstjórnar, D-lista
  • Valur Þór Hilmarsson bæjarfulltrúi, S lista
  • Hilmar Þór Elefsen bæjarfulltrúi, S lista
  • Hilmar Þór Hreiðarsson bæjarfulltrúi, S lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Hátíðarsamþykkt Fjallabyggðar í tilefni 100 ára kaupstaðarafmælis Siglufjarðar

Málsnúmer 1805065Vakta málsnúmer

Á hátíðarfundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar sem haldinn er í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar, þann 20. maí 2018, samþykkir bæjarstjórn að veita 4 milljónum króna til skógræktar í sveitarfélaginu.
Fjallabyggð er rík af fallegri náttúru og möguleikar til útivistar eru margir og fjölbreytilegir. Undanfarin ár hafa bæjaryfirvöld lagt áherslu á umhverfismál og með samþykktinni vill bæjarstjórn gera enn betur í fegrun umhverfisins. Unnið er að innleiðingu verkefnisins Heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð en með því er lögð áhersla á að bæta heilsu og líkamlega, andlega og félagslega líðan íbúa, m.a. með því að hvetja til aukinnar hreyfingar og útivistar.
Í skógræktinni í Skarðsdal hefur Skógræktarfélag Siglufjarðar unnið ötult starf í tæp 80 ár og er ein af helstu náttúruperlum Siglufjarðar, sem margir nýta sér til útivistar. Í samstarfi við Skógræktarfélagið vill bæjarstjórn stuðla að enn frekari uppbyggingu á svæðinu með grisjun, sáningu og gerð göngustíga.
Skeggjabrekkudalur í Ólafsfirði er vinsæll útivistarstaður. Í mynni dalsins er golfvöllur og á veturna er dalurinn mikið nýttur af gönguskíðafólki og vélsleðamönnum. Í samstarfi við Golfklúbb Fjallabyggðar og fagaðila verða gróðursett tré innan golfvallarsvæðisins.

Fundi slitið - kl. 16:30.