1.Fjárhagsáætlun 2014 og 2015 - 2017
3.Styrkumsókn fyrir Ólæti - tónlistar- og menningarhátíð
4.Viðauki við fjárhagsáætlun 2013 og 2014 - 2016
5.Veikindaréttur -starfsmannamál
7.Minnisblað vegna þjóðhagsspár Hagstofu Íslands frá 15. nóv. 2013
8.Til umsagnar - Frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög, 152. mál
9.Til umsagnar - Frumvarp til lag um lífsýnasöfn, 160. mál
10.Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu vega af vegaskrá
11.Lánasjóður sveitarfélaga - breytilegir útlánavextir 1. janúar 2014
12.Aukaþing SSNV - fjárhagsáætlun 2014 vegna málefna fatlaðs fólks
13.Fundagerðir stjórnar Eyþings 2013
Fundi slitið - kl. 19:00.
Undir þessum lið sat forseti bæjarstjórnar Ingvar Erlingsson fund bæjarráðs.
Farið var yfir athugasemdir og ábendingar sem fram hafa komið eftir fyrri umræðu fjárhagsáætlunar.
Búið er að breyta uppsetningu fjárhagsáætlunar á þann veg að þjónustumiðstöð er orðin sjálfstæð A-hluta stofnun og ekki lengur hluti af veitustofnun.
Við umfjöllun um gjaldskrár samþykkir bæjarráð að endurskoða áformaðar breytingar á þjónustugjaldskrám sem liggja fyrir í drögum að fjárhagsáætlun 2014.
Með þessari ákvörðun vill bæjarráð leggja sitt af mörkum til að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt komandi kjarasamninga.
Samþykkt samhljóða.
Í tengslum við bókun hafnarstjórnar 4. nóvember s.l. um starfsmannahald, lagði Egill Rögnvaldsson fram tillögu um að hætt verði við að fækka hafnarvörðum.
Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að fela hafnarstjóra að gera tillögu til bæjarráðs um breytt vinnufyrirkomulag með tilliti til þjónustu hafnarinnar.
Ólafur H. Marteinsson sat hjá.