Bæjarstjórn Fjallabyggðar - aukafundur

Haldinn verður aukafundur í bæjarstjórn Fjallabyggðar þann 8. mars kl. 12:00. Fundurinn fer fram í Tjarnarborg, Aðalgötu 13 á Ólafsfirði.
Lesa meira

Upplýsingafundur um stöðu hitaveitu í Ólafsfirði

Boðað er til upplýsingafundar þriðjudaginn 12. mars kl. 17.00 í Tjarnarborg í Ólafsfirði.
Lesa meira

Starfsmaður óskast í sumarafleysingar á Lindargötu 2 Siglufirði

Hefur þú áhuga á að vinna fjölbreytta og krefjandi vinnu á litlum vinnustað? Starfsmann vantar í sumarafleysingar í vaktavinnu, á Lindargötu 2 Siglufirði.
Lesa meira

Markaðsstofa Norðurlands býður upp á súpufundi víðsvegar um Norðurland frá 12. mars - 16. apríl.

Markaðsstofa Norðurlands býður upp á súpufundi víðs vegar á Norðurland frá 12. mars - 16. apríl.
Lesa meira

Aðgerðaráætlun ferðaþjónustunnar í Samráðsgátt

Menningar- og viðskiptaráðherra hefur sett til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaráætlun til 2030. Mikil vinna hefur verið lögð í áætlunina undanfarin misseri og eru öll hvött til að skoða tillöguna og senda inn umsagnir ef einhverju þarf að koma á framfæri. Verkefnið er opið til umsagna til 12. mars.
Lesa meira

Páskadagskrá Fjallabyggðar - Viðburðir yfir páska

Fjallabyggð mun gefa út páskadagskrána Páskafjör fyrir páska, líkt og síðustu ár, þar sem taldir verða til viðburðir, opnunartímar verslana, safna, setra, gallería og stofnana, afþreying og önnur þjónusta dagana 24. mars - 1. apríl nk.
Lesa meira

239. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

239. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar, verður haldinn kl. 17:00 þann 22. febrúar 2024 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði.
Lesa meira

Skráning opin í Fljótamótið 2024

Eftir fjögurra ára hlé hefur verið opnað fyrir skráningu að Fljótamóti sem haldið verður föstudaginn langa, þann 29 mars nk. Gengnar verða fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi með hefðbundinni aðferð í öllum flokkum barna, unglinga, og fullorðinna.
Lesa meira

Ert þú rétti aðilinn til að halda utan um Trilludaga?

Fjallabyggð kannar möguleika á útvistun umsjónar með Trilludögum 2024.
Lesa meira

Útnefning Bæjarlistamanns Fjallabyggðar og afhending styrkja til menningarmála 2024

Þann 15. febrúar sl. var bæjarlistamaður Fjallabyggðar formlega útnefndur en Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 9. nóvember sl., að útnefna Ástþór Árnason Bæjarlistamann Fjallabyggðar árið 2024. Er það í 15. sinn sem nefndin útnefnir bæjarlistamann Fjallabyggðar.
Lesa meira