Starfsmaður óskast í sumarafleysingar á Lindargötu 2 Siglufirði

Hefur þú áhuga á að vinna fjölbreytta og krefjandi vinnu á litlum vinnustað?

Starfsmann vantar í sumarafleysingar í vaktavinnu, á Lindargötu 2 Siglufirði.

Skilyrði er að umsækjandi sé með hreint sakavottorð.

Æskilegt er að viðkomandi:

  • hafi bílpróf
  • er stundvís
  • er tilbúin að tileinka sér nýjungar og
  • er tilbúin að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir.  

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Sótt er um starfið hér gegnum þjónustugátt á heimasíðu Fjallabyggðar.

Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Bryndísi forstöðuþroskaþjálfa í síma 866-1976.