Nýr löndunarkrani á Hafnarbryggju á Siglufirði

Landað úr Hring SI 34
Landað úr Hring SI 34

Nýr löndunarkrani hann tekinn í notkun í dag á Hafnarbryggjunni á Siglufirði. 

Hafnarbryggjan á Siglufirði fékk nýjan löndunarkrana nú á dögunum og var hann tekinn í notkun í dag. Hringur SI 34 fékk fyrstu löndun úr hinum nýja krana.

Samþykkt var í hafnarstjórn í nóvember sl. að staðsetja nýja löndunarkranann við vesturkant Hafnarbryggju ásamt því að færa löndunarkrana sem staðsettur er á Ingvarsbryggju á sama kant. Þannig yrði Ingvarsbryggja viðlegukantur. Með þessum breytingum er verið að horfa til öryggissjónarmiða á hafnarsvæði með tilkomu fjölgunar ferðamanna.

Kraninn lyftir um 1250 kílóum í lengstu stöðu sem eru sjö metrar.  Kraninn er fjarstýrður hægt að stjórna honum hvar sem er á bryggjunni.