Hefur þú áhuga á að vinna fjölbreytta og krefjandi vinnu á litlum vinnustað?
Starfsmann vantar í afleysingar í vaktavinnu, á Lindargötu 2 Siglufirði, frá og með 1. febrúar nk.
Skilyrði er að umsækjandi sé með hreint sakavottorð.
Æskilegt er að viðkomandi:
- hafi bílpróf
- sé stundvís
- sé tilbúin að tileinka sér nýjungar
- sé tilbúin að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.
Sótt er um rafrænt gegnum íbúagátt Fjallabyggðar - Almenn umsókn um starf hjá Fjallabyggð.
Allar nánari upplýsingar veitir Bryndís Hafþórsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 866-1976.