Karlmaður óskast í 65% starf í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar

Mynd: Magnús A. Sveinsson
Mynd: Magnús A. Sveinsson

Karlmaður óskast í 65% starf í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar
Starfstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði, og skiptast vaktir tiltölulega jafnt á milli beggja starfstöðva.  Sökum eðli starfsins koma karlmenn einungis til greina.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit og gæsla í sundlaug.
  • Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
  • Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  • Almenn þrif og annað sem til fellur.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.
  • Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
  • Hreint sakavottorð.
  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.
  • Góð tölvukunnátta er kostur.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.
Vinnutími: Morgun- og kvöldvaktir.

Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.

Umsóknir sendist á skarphedinn@fjallabyggd.is til og með: 18. mars 2024 og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136