Þjónusta við fatlaða

Félagsþjónusta skal stuðla að því að fólki með fötlun sé tryggt jafnrétti og sambærileg lífskjör og aðrir þjóðfélagsþegnar njóta. Samkvæmt lögum um málefni fatlaðra á fólk með fötlun rétt á ýmiss konar þjónustu frá sveitarfélaginu og ríkinu. Eftirfarandi þjónusta er meðal annars veitt ásamt almennri og sérhæfðri ráðgjöf til fatlaðra og fjölskyldna þeirra:

Liðveisla
Liðveisla er persónulegur stuðningur sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, til dæmis með aðstoð við að njóta tómstunda, menningar og lista. Er veitt bæði börnum og fullorðnum.

Frekari liðveisla

Frekari liðveisla er margháttuð aðstoð við fullorða við ýmsar athafnir daglegs lífs inni á heimilum og úti í samfélaginu.

Dagþjónusta
Dagþjónusta fyrir fullorðna er starfrækt alla virka daga. Þar gefst fólki meðal annars tækifæri til að sinna tómstundaiðju, vinna ýmis verkefni, fara í gönguferðir, spjalla og fá keyptan hádegismat.

Þjónusta við fötluð börn og fjölskyldur þeirra

Boðið er upp á ráðgjöf, þjálfun, liðveislu, dvöl hjá stuðningsfjölskyldu, sumardvöl o.fl., allt eftir þörfum hvers og eins. Ráðgjöf er veitt til leikskóla og skóla vegna fatlaðra barna. Umsóknir um umönnunarbætur, stuðningsfjölskyldur og liðveislu eru afgreiddar hjá starfsmönnum félagsþjónustunnar á Siglufirði og í Ólafsfirði.