Flýtilyklar
30. nóvember 2011
126. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi í Ólafsfirði miðvikudaginn 30. nóvember 2011
og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Sigurður Hlöðversson, Jón Árni Konráðsson, Hilmar Þór Elefsen, Helga Jónsdóttir, Valur
Þór Hilmarsson og Ármann Viðar Sigurðsson.
Fundargerð ritaði: Valur Þór Hilmarsson, Umhverfisfulltrúi.
Fyrir var tekið:
1. 1111065 - Íbúðahús við Brimnes
Sigurjón Magnússon óskar eftir leyfi til að setja niður
íbúðarhús á lóð sinni sunnan við íbúðarhúsið á Brimnesi. íbúðarhúsið er
hæð og ris gamla íbúðarhússins á Vatnsenda í Ólafsfirði. Fyrirhuguð staðsetning er í beinni línu um 30 metrum
sunnan við íbúðarhúsið á Brimnesi skv. meðfylgjandi skissu.
Afgreiðslu frestað.
2. 1111076 - Lóðaleigusamningur Gránugata 19.
Lagður var fram lóðaleigusamningur ásamt lóðablaði fyrir
Gránugötu 19, Siglufirði.
Erindi samþykkt.
3. 1111077 - Lóðaleigusamningur Gránugata 19a
Lagður var fram lóðaleigusamningur ásamt lóðablaði fyrir
Gránugötu 19a, Siglufirði.
Erindi samþykkt.
4. 1111060 - Varðar 5. tl. ákvæðis til bráðabirgðalaga í skipulagslögum nr. 123/2010
Skipulagsstofnun sendi inn erindi
þar sem ítrekað er að frestur til að senda inn uppdrætti skv. 5. tl. bráðabirgðaákvæðis skipulagslaga, sem sannanlega hafa verið
samþykktir í sveitastjórn fyrir 1. janúar 1998 og byggja á aðalskipulagi. Frestur rennur út 31. desember 2011.
Nefndin felur tæknideild að fara yfir skipulagsuppdrætti sem sannanlega hafa verið samþykktir í sveitastjórn fyrir 1. janúar 1998 og ganga úr
skugga um að þeir hafi hlotið fullnægjandi afgreiðslu Skipulagsstofnunar, frestur rennur út 31. desember 2011.
5. 0810130 - Samþykkt um kattahald
Lagt var fram drög að samþykkt um kattahald í Fjallabyggð.
Samþykkt með áorðnum breytingum og felur nefndin tæknideild að gera tillögu að gjaldskrá.
6. 1111059 - Hringsjá á Álfhól
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:20.




