Flýtilyklar
15. desember 2011
127. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi syðra á Siglufirði fimmtudaginn 15. desember 2011
og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Kristinn Gylfason, Sigurður Hlöðversson, Jón Árni Konráðsson, Hilmar Þór Elefsen, Sigríður V.
Vigfúsdóttir, Valur Þór Hilmarsson og Ármann Viðar Sigurðsson.
Fundargerð ritaði: Valur Þór Hilmarsson, Umhverfisfulltrúi.
Fyrir var tekið:
1. 1112029 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um breytingu á rekstrarleyfi
Vegna umsóknar um breytt rekstrarleyfi fyrir Billann ehf.
óskar Sýslumaðurinn á Siglufirði eftir staðfestingu frá byggingafulltrúa, með vísan í 10. gr. laga nr. 85/2007, um að starfsemin
sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála sem og að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu.
Nefndin óskar eftir að byggingarfulltrúi geri úttekt á húsnæðinu.
2. 1008138 - Deiliskipulag - Hesthúsasvæði Siglufirði
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn um deiliskipulag fyrir hesthús,
hestaíþróttir og frístundabúskap á Siglufirði og getur ekki tekið afstöðu til þess, fyrr en skýrt hefur verið hvernig
tekið hefur verið mið af hættmati sem fyrir liggur hjá Veðurstofunni dags. 8. apríl 2008, og umsögn heilbrigðiseftirlits um fráveitur og
fyrirkomulag taðþróa. Jafnframt þarf að gera betur grein fyrir og setja skilmála um eftir atvikum:
Vatnsveitu og rafveitu. Frágang stíga og gatna, og breidd stíga. Landmótun og frágangi á æfinga- og keppnissvæði, þ.e. ef um
nýframkvæmd er að ræða. Lóðarstærðir. Hvort nýta megi ris, eins og algengt er á hesthúsasvæðum, þótt
ákvæði sé um að húsin séum á einni hæð. Yfirfara að tákn í skýringum passi við línugerð á
uppdrætti. Þar sem gert er ráð fyrir fjölmörgum framkvæmdum utan lóða, s.s. bílastæðum, kerrustæðum, vallarhúsi
ofl. er mikilvægt að skýra hvort um sameiginleg eða sameiginlegt svæði sé að ræða og þá hver mörk þeirra eða þess
eru.
Nefndin leggur til að hesthús nr. 5 og 6 á teikningu verði tekin út, þar sem þau eru inn á hættusvæði B. Jafnframt verði
fjárhús nr. 2, 4 og 6 tekin út og reiturinn skilgreindur sem beitarhólf.
Tæknideild er falið að fylgja öðrum athugasemdum eftir.
3. 1010082 - Deiliskipulag Hóls- og Skarðsdals
Deiliskipulag fyrir Hóls- og Skarðsdal var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
frá 21. október til og með 1. desember sl. Deiliskipulagsvæðið er u.þ.b. 773 ha að stærð og tekur yfir dalbotn Hólsdals og
hliðardalinn Skarðsdal. Þar er skipulagt útivistarsvæði með skíðasvæði, golfvelli, skógrækt, knattspyrnusvæði,
tjaldsvæði, frístundahúsum, þjónustureit o.fl. Forsendur skipulagsins er m.a. tillaga að snjóflóðahættumati fyrir
svæðið sem er í kynningu.
Á auglýsingartíma bárust ein athugasemd og ein athugsemd barst eftir auglýstan athugsemdarfrest.
Frá Hestamannafélaginu Glæsi.
Athugasemdir vegna tillögu að útivistarsvæði í Hóls- og Skarðsdal Siglufirði.
* Hestamannafélagið Glæsir á reiðveginn í Hólsdal og samþykkir ekki breytta nýtingu á honum.
* Það gengur ekki upp að golfkúlur séu slegnar yfir reiðveg.
* Golfklúbburinn hefur gert athugasemdir ef riðið hefur verið á gömlum slóðum í nálægð golfvallar austan Hólsár sbr.
myndskreitt skammarbréf - undarlegt er að þessi sambúð eigi að ganga betur vestan ár.
* Við höfnum því að tekin séu af beitarhólf.
Tæknideild falið að koma með svör við athugasemdum og leiðrétta skipulag.
4. 1012023 - Deiliskipulag við Bylgjubyggð og frístundabyggð
Borist hafa athugasemdir íbúa við Bylgjubyggð 1 - 11 vegna
deiliskipulags "Hornbrekkubót, verslunar- og þjónustusvæði, Ólafsfjarðarvatni".
Gerð er athugasemd við mörk deiliskipulagstillögu og heimkeyrslu við raðhúsið Bylgjubyggð 1 - 11. Óskað er eftir að skipulagsmörk við
raðhús færist að vesturstafni spennistöðvarhúss RR.
Nefndin samþykkir erindið og felur tæknideild að senda tillöguna til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.
5. 1112020 - Lóðaleigusamningur fyrir reiðskemmu Gnýfara
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir að tillögu sinni að samþykktur
verði meðfylgjandi lóðaleigusamningur við Hestamannafélagið Gnýfara vegna 9021 m2 byggingarlóðar við Kleifarveg í Ólafsfirði,
lóðin telst nr. 19 við þá götu.
Nefndin samþykkir erindið.
6. 1112001 - Gjaldskrá fyrir kattahald í Fjallabyggð
Óskað er eftir að skipulags- og umhverfisnefnd taki afstöðu um
gjaldskrá fyrir kattahald í Fjallabyggð.
Nefndin leggur til að gjaldskrá fyrir kattahald í Fjallabyggð verði samþykkt.
7. 1112039 - Samþykkt um hundahald í Fjallabyggð - endurskoðuð
Lögð er fram tillaga að lítilsháttar breytingum á
samþykkt um hundahald í Fjallabyggð, óskað er eftir að skipulags- og umhverfisnefnd taki afstöðu til breytinganna.
Nefndin samþykktir breytingar á samþykkt um hundahald.
8. 1112040 - Gjaldskrá fyrir hundahald í Fjallabyggð - endurskoðuð
Lögð er fram tillaga að gjaldskrá fyrir hundahald í
Fjallabyggð, óskað er eftir að skipulags- og umhverfisnefnd taki aftöðu til tillagnanna.
Nefndin samþykkir breytingar á gjaldskrá fyrir hundahald í Fjallabyggð
9. 1112041 - Skýrsla til Umhverfisstofnunar um störf náttúruverndarnefnda
Lögð er fram skýrsla frá Umhverfisstofnun um
störf náttúruverndarnefnda sveitafélaga, jafnframt er minnisblað um hlutverk náttúruverndanefnda.
Óskað er eftir því að skipulags- og umhverfisnefnd taki afstöðu varðandi stöðu náttúruverndarmála innan nefndarinnar með
tilliti til laga nr. 44/1999.
Tæknideild falið að ganga frá skýrslu til Umhverfisstofnunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:05.




