15. desember 2011

Fjallabyggð

15. desember 2011

60. fundur Félagsmálanefndar Fjallabyggðar
haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði fimmtudaginn 15. desember 2011
og hófst hann kl. 14:30.

Fundinn sátu: Rögnvaldur Ingólfsson, Margrét Ósk Harðardóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Guðrún Árnadóttir, Hjörtur Hjartarson, Hrefna Katrín Svavarsdóttir og Helga Helgadóttir.
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson, félagsmálastjóri.

Fyrir var tekið:

1.  1105063 - Fasteignasjóður
Félagsmálastjóri lagði fram minnisblað varðandi kaup eða leigu á fasteigninni að Lindargötu 2, heimili fatlaðra. Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélag sem fer með umráð yfir fasteigninni hefur lagt fram verðmat á fasteigninni og er bæjarfélaginu boðin eignin til kaups á matsverði. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 13.12. síðast liðinn og bókaði m.a. að fela félagsmálastjóra að kanna hvort hægt sé að kaupa fasteignina á hagstæðari kjörum, að öðrum kosti verði húsnæðið leigt.
   
2.  1104005 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Samþykkt.
   
3.  1112033 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Samþykkt.
   
4.  1112042 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Samþykkt.
   
5.  1112052 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Samþykkt.
   
6.  1111062 - Fundargerð þjónustuhóps SSNV 18.11.2011
Lagt fram til kynningar.   

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 15:30.

Höfundur: Hafdís Jónsdóttir - Uppfært: 16.12.2011
headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya