Flýtilyklar
15. febrúar 2012
75. fundur Bæjarstjórnar Fjallabyggðar
haldinn í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Siglufirði
miðvikudaginn 15. febrúar 2012 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Þorbjörn Sigurðsson, Egill Rögnvaldsson, Ingvar Erlingsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Helga Helgadóttir, S. Guðrún Hauksdóttir, Ólafur
Helgi Marteinsson, Guðmundur Gauti Sveinsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Ólafur Þór Ólafsson.
Forseti áréttaði í upphafi fundar að bæjarfulltrúum ber að tilkynna forföll til bæjarskrifstofu og boða jafnframt varamann sinn til
fundar.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1202039 - Fasteignagjöld 2012
Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir málinu.
Á 246. fundi bæjarráðs lá fyrir minnisblað skrifstofu- og fjármálastjóra í sjö liðum um fasteignagjöld 2012,
álagningu þeirra, álagningarprósentur, afsláttarreglur og vanskilainnheimtu.
Við fjárhagsáætlunargerð 2012 var samþykkt að álagningarprósentur yrðu óbreyttar frá fyrra ári.
246. fundur bæjarráðs samþykkti að fela bæjarstjóra að semja um endurnýjun samnings um innheimtu vanskilakrafna við Momentum
greiðsluþjónustu ehf. og Gjaldheimtunnar ehf.
Einnig samþykkti bæjarráð að taka til umfjöllunar álagningarprósentu á gripahús á skipulögðum svæðum
í þéttbýli, þegar Alþingi hefur lokið umfjöllun um 3. grein laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Bæjarstjórn samþykkir tillögur bæjarráðs með 8 atkvæðum.
2. 1010082 - Deiliskipulag Hóls- og Skarðsdals
Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir málinu og lagði fram teikningar.
Bæjarstjóri flutti eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag fyrir Hóls- og Skarðsdal, enda verði eftirtalinna atriða gætt við endanlega hönnun golfvallarins í
Hólsdal:
1. Golfkúlum verði aldrei slegið yfir reiðleið.
2. Reiðleiðir verði aðskildar frá annarri umferð eins og kostur er.
3. Gert verði ráð fyrir sérstakri þjónustuleið fyrir skógrækt og önnur útivistarsvæði.
Til máls tók Egill Rögnvaldsson.
Egill Rögnvaldsson og Guðmundur Gauti Sveinsson lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Það er mikið fagnaðarefni að loksins er komin fram heilstæð framtíðaráætlun um uppgræðslu og vonandi uppbyggingu á
mikilli útivistarparadís í Hólsdalnum og Skarðsdalnum hér í Siglufirði".
Aðrir bæjarfulltrúar tóku heilshugar undir framkomna bókun.
Bæjarstjórn samþykkti tillögu með 8 atkvæðum.
3. 1201024 - Tjarnarstígur 3 - útboðs- og samningsskilmálar
Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir málinu og fór jafnframt yfir fundargerð byggingarnefndar frá 13. febrúar
2011.
Niðurstaða og bókun nefndarinnar er:
"Það er skoðun byggingarnefndar að bæjarstjórn taki upp viðræður við lægst bjóðanda um stækkun grunnskólans
í Ólafsfirði".
Til máls tóku Ingvar Erlingsson, Egill Rögnvaldsson og Bjarkey Gunnarsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að taka upp viðræður við lægst bjóðanda, Eykt ehf. um stækkun grunnskólans í Ólafsfirði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.
Höfundur: Hafdís Jónsdóttir - Uppfært: 28.02.2012




