Flýtilyklar
14. febrúar 2012
246. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi í Ólafsfirði þriðjudaginn 14. febrúar 2012
og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Ólafur Helgi Marteinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Egill Rögnvaldsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Ólafur
Þór Ólafsson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1202028 - Afhending líkans Elliða SI 1, 21. júlí nk.
Í tölvupósti frá Gunnari Trausta f.h. félagsskaparins
Hafliða SI 2, er óskað eftir viðræðum við sveitarfélagið um framkvæmd afhendingar líkans af nýsköpunartogaranum Elliða SI 1,
þann 21. júlí n.k. á Siglufirði.
Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð 30 þúsund og felur menningafulltrúa að sjá um samskipti við félagið.
2. 1202029 - Bylgjubyggð 55 - Söluheimild
Þar sem húsaleigusamningi vegna Bylgjubyggðar 55 í Ólafsfirði hefur verið sagt
upp og húsnæðið laust frá 1. apríl 2012, óskar skrifstofu- og fjármálastjóri eftir heimild til að setja umrædda húseign
á sölu með möguleika á skammtímaleigu á meðan á söluferli stendur.
Bæjarráð samþykkir söluheimild fyrir Bylgjubyggð 55 í Ólafsfirði.
3. 1202039 - Fasteignagjöld 2012
Fyrir bæjarráði liggur minnisblað skrifstofu- og fjármálastjóra í sjö liðum
um fasteignagjöld 2012, álagningu þeirra, álagningarprósentur, afsláttarreglur og vanskilainnheimtu.
Við fjárhagsáætlunargerð 2012 var samþykkt að álagningarprósentur yrðu óbreyttar frá fyrra ári.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að semja um endurnýjun samnings um innheimtu vanskilakrafna við Momentum
greiðsluþjónustu ehf. og Gjaldheimtunnar ehf.
Bæjarráð samþykkir að taka til umfjöllunar álagningarprósentu á gripahús á skipulögðum svæðum í
þéttbýli, þegar Alþingi hefur lokið umfjöllun um 3. grein laga um tekjustofna sveitarfélaga.
4. 1202043 - Lóðarleigusamningur í Skarðsdal - búsetukvöð
Tekinn til umfjöllunar samningur um lóðina Valló
í Skarðsdal l.nr. 197278 undir sumarbústað, sem ekki fékkst þinglýstur á sínum tíma vegna búsetukvaðar.
Gengið hefur verið tvívegis frá lóðarleigusamningi fyrir umrædda eign, sjá m.a. bókun frá 12. nóvember 2003.
Fyrir bæjarráði liggja upplýsingar Umhverfisráðuneytisins frá 1994 vegna sambærilegs máls á Ísafirði, þar sem
skilyrði við búsetu var takmarkað og þeirri kvöð þinglýst.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera breytingar á kvöðum sem uppfylla þinglýsingu á lóðarleigusamningi.
Egill Rögnvaldsson vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
5. 1202044 - Stofnun og umboð fyrir byggingarreikning fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar
Bæjarráð samþykkir að veita
bæjarstjóra umboð til að ganga frá stofnun byggingarreiknings í Arion banka fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar.
Jafnframt var samþykkt úttektar og aðgangsheimild fyrir bæjarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra.
6. 1202047 - Tilkynning um að rekstrarleyfi er að renna út
Í erindi Sýslumanns á Siglufirði er tilkynnt að rekstrarleyfi
Tjarnarborgar í Ólafsfirði á grundvelli laga nr 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald renni út 1. mars n.k.
Bæjarráð samþykkir að sækja um endurnýjun rekstrarleyfis.
7. 0811113 - Trúnaðarmál - Lögfræðiálit
Lögfræðiálit lagt fram til kynningar.
8. 1202018 - Ársskýrsla 2011 - Slökkvilið Fjallabyggðar
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Slökkviliðs
Fjallabyggðar fyrir árið 2011.
9. 1202033 - Ungmennaráð Fjallabyggðar tekur til starfa
Í tilkynningu Íþrótta- og tómstundafullrúa
Fjallabyggðar, kemur fram tillaga um skipan Ungmennaráðs Fjallabyggðar.
Aðalmenn verði:
Brynja Sigurðardóttir MTR
Guðni Brynjólfur Ásgeirsson MTR
Sigurjón Ólafur Sigurðarson MTR
Sveinn Andri Jóhannsson GF og
Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir GF
Varamenn
Marinó Jóhann Sigursteinsson GF
Sigurður Björn Gunnarsson MTR
Eva Rún Þorsteinsdóttir MTR og
Magnús Andrésson MTR
Kynningarfundur var haldinn í ráðhúsinu Siglufirði 13. febrúar, þar sem deildarstjórar funduðu með ungmennaráði.
Bæjarráð vísar tillögu að nefndarskipan til bæjarstjórnar.
10. 1202025 - Launayfirlit - janúar 2012
Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram launayfirlit fyrir janúar 2012. Gerði hann
grein fyrir helstu frávikum frá áætlun ársins.
Niðurstaða launayfirlits er 104,7% eða um 3 m.kr. umfram áætlun.
11. 1202024 - Lánayfirlit 31. janúar 2012
Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram lánayfirlit fyrir Fjallabyggð 31.
janúar 2012.
Nettóstaða skulda er 858 milljónir.
12. 1106111 - Snjóflóðavarnir í Siglufirði - staða framkvæmda
Lagt fram til kynningar framkvæmdaáætlun vegna
snjóflóðavarna í Siglufirði 2012-2020.
Fyrirhugaður er fundur Umhverfisráðuneytis í næsta mánuði til yfirferðar á forsendum framkvæmdaáætlunarinnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir því að fulltrúi sveitarfélagsins fái að sækja þennan
fund.
13. 1202022 - Til umsagnar - Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 408. mál
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um
stjórn fiskveiða (þjóðareign á nytjastofnum og nýtingarréttur), 408. mál.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0589.html
Lagt fram til kynningar.
14. 1202041 - Til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2014, 343.
mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára fjarskiptaáætlun
fyrir árin 2011-2014, 343. mál. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0419.html.
Lagt fram til kynningar.
15. 1202040 - Til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022, 342.
mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um tólf ára fjarskiptaáætlun
fyrir árin 2011--2022, 342. mál.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0418.html
Lagt fram til kynningar.
16. 1202031 - Breytingar á mælabúnaði í Ólafsfirði
Lagt fram bréf frá Norðurorku hf. dagsett 3. febrúar
2012, þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem fyrirtækið ætlar að gera á mælabúnaði hitaveitu í Ólafsfirði á
næstu vikum og mánuðum.
Ætlunin er að skipta úr hemlum yfir í mæla hjá stærstu viðskiptavinum Norðurorku.
Til lengri framtíðar er síðan horft til þess að skipt verði úr hemlum yfir í mæla í öllum húsum í
Ólafsfirði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.




