Flýtilyklar
9. janúar 2012
71. fundur Fræðslunefndar Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi í Ólafsfirði mánudaginn 9. janúar 2012
og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: S. Guðrún Hauksdóttir, Rósa Jónsdóttir, Helga Helgadóttir, Sólrún
Júlíusdóttir og Karítas Skarphéðinsdóttir Neff.
Fundargerð ritaði: Karítas Skarphéðinsdóttir, fræðslu- og menningarfulltrúi.
Fyrir var tekið:
1. 1201018 - Starfsmannamál og stöðuhlutföll á Leikskóla Fjallabyggðar
Undir þessum lið sátu: Olga
Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar, Kristín M.H. Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri og María
Guðmundsdóttir f.h. starfsmanna.
Skólastjórar fóru yfir starfsmannamál og stöðuhlutföll á Leikskóla Fjallabyggðar.
2. 1112043 - Samræmd könnunarpróf 2011 4., 7. og 10. bekkur
Undir þessum lið sat: Jónína Magnúsdóttir
skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Skólastjóri fór yfir meðaltöl Grunnskóla Fjallabyggðar á samræmdum könnunarprófum 2011.
3. 1201026 - Foreldrakönnun - Grunnskóli Fjallabyggðar
Undir þessum lið sat: Jónína Magnúsdóttir
skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Skólastjóri lagði fram foreldrakönnun Grunnskóla Fjallabyggðar sem lögð var fyrir í nóvember.
4. 1201019 - Beiðni um námsvist í grunnskóla utan lögheimilissveitarfélags
Undir þessum lið sat: Jónína
Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar.
Reykjanesbær hefur óskað eftir námsvist nemanda í Fjallabyggð.
5. 1103057 - Reglur um starfs- og endurmenntun fyrir starfsmenn Fjallabyggðar
Fræðslunefnd fór yfir reglur um starfs- og endurmenntun fyrir starfsmenn
Fjallabyggðar en reglurnar skulu endurskoðaðar í janúar ár hvert.
6. 1109112 - Rannsókna- og þróunarstöð Háskólans á Akureyri. Kynningarbréf til skólaskrifstofu
"Evrópurannsókn á netnotkun meðal ungmenna"
Lagt fram til kynningar.
Rannsókna- og þróunarmiðstöð HA (RHA) hefur lagt fyrir Evrópurannsókn á netnotkun unglinga í 9. og 10. bekk í grunnskólum.
Fræðslu- og menningarfulltrúi gaf skriflegt leyfi til samstarfs við Grunnskóla Fjallabyggðar og til að leggja könnunina fyrir nemendur.
7. 1112044 - Forfallakennsla í grunnskólum
Lagt fram til kynningar.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hvetur grunnskóla til að taka skipulag forfallakennslu til umfjöllunar í skólaráði þar sem
forfallakennslu í grunnskólum hafi víða ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.




