Flýtilyklar
6. janúar 2012
4. fundur Byggingarnefndar Grunnskóla Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi syðra á Siglufirði föstudaginn 6. janúar 2012
og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu: Sigurður Valur Ásbjarnarson, Kristinn Gylfason, Guðbjörn Arngrímsson, S. Guðrún Hauksdóttir, Jóna
Vilhelmína Héðinsdóttir og Ármann Viðar Sigurðsson.
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1201023 - Arkitektateikningar
Arkitekt Grunnskóla Fjallabyggðar mætti á fund nefndarinnar.
Fram kom að arkitektar hafa farið yfir og samþykkt nær allar ábendingar sem komu fram hjá nefndinni á síðasta fundi og lagfært teikningar
í samræmi við fram komnar óskir.
Teikningar arkitekta voru bornar upp til samþykktar til útboðs með áorðnum breytingum, sjá hér sérstaka bókun.
1. Fundarmenn lögðu áherslu á að gluggar verði samræmdir frekar á suðurhlið nýbyggingar í samræmi við
íþróttasal, sjá og fundargerð síðasta fundar.
2. Spjöld í hurðum miðist við gluggahæð á neðri hæð.
3. Nefndarmenn samþykktu tillögu arkitekta um gólfefni í smíðastofu.
4. Arkitekt mun kanna með hita í þak á útbyggingu neðri hæðar.
Samþykkt samhljóða.
2. 1201025 - Tjarnarstígur 3 - Verklýsing og tilboðsskrá
Verklýsing samþykkt til útboðs, enda gerir nefndin ekki
athugasemdir við verklýsingu og tilboðsskrá enda hefur deildarstjóri tæknideildar farið yfir umrædd gögn fyrir fundinn.
Samþykkt samhljóða.
3. 1201022 - Stækkun Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði - auglýsing í Mbl.
Byggingarnefnd Grunnskóla
Fjallabyggðar samþykkir auglýsingu um útboð á stækkun á skólahúsnæðinu að Tjarnarstíg 3 í
Ólafsfirði og er vísað í meðfylgjandi auglýsingu.
Samþykkt samhljóða.
Nefndin leggur áherslu á að kostnaðaráætlun liggi fyrir við opnun tilboða.
4. 1111031 - Verkhönnunarfundir vegna Grunnskóla Fjallabyggðar - Ólafsfirði
Lagt fram á síðasta fundi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30




