Flýtilyklar
5. janúar 2012
128. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi í Ólafsfirði fimmtudaginn 5. janúar 2012
og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Kristinn Gylfason, Magnús Albert Sveinsson, Sigurður Hlöðversson, Jón Árni Konráðsson, Hilmar Þór
Elefsen og Ármann Viðar Sigurðsson.
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson, Deildarstjóri tæknideildar.
Fyrir var tekið:
1. 1112078 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Olís Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Siglufirði
óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi til handa þjónustustöð Olís, Bylgjubyggð 2, 625 Ólafsfirði. Sótt er um
nýtt rekstrarleyfi veitingastaðar skv. I. flokki 4. gr. laganna. Óskað er eftir að byggingarfulltrúi staðfesti að starfsemin sé í
samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála sem og að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu. Einnig er óskað að
ljósrit staðfestra teikninga af staðnum verði lögð fram.
Tæknideild falið að svara erindinu.
2. 1110067 - Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028, reiðleiðir
Á fundi nefndarinnar þann 6. október 2011 var
samþykkt að breyta merkingu reiðleiða á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028, við Kleifarveg og Ósbrekku og merktar verði gamlar reiðleiðir um
Fossabrekkur og Fossdal.
Lagðir eru fram þéttbýlis- og dreifbýlisuppdráttur með breytingum á merkingum reiðleiða í samræmi við það sem
samþykkt var.
Erindi samþykkt og tæknideild falið að senda breytinguna til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.
3. 1010082 - Deiliskipulag Hóls- og Skarðsdals
Á síðasta fundi nefndarinnar þann 15. desember sl. voru athugasemdir vegna tillögu
að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Hóls og Skarðsdal tekið fyrir.
Vegna mistaka varð ein athugasemd utanveltu í þessu ferli og er beðist velvirðingar á því og er hún hér með lögð fram.
Frá Skógræktarfélagi Siglufjarðar kom eftirfarandi athugasemd á áður auglýstum fresti til athugasemda.
Varðar auglýsingu um deiliskipulag fyrir útivistarsvæði í Hólsdal
Skógræktarfélag Siglufjarðar vill koma fram
eftirfarandi athugasemdum við deiliskipulags uppdrátt:
1. Reitir merktir F1, F2, F3 og F4 frístundahús verði felldir út. Ekki kemur til greina að gert verði ráð fyrir frístundahúsum
á aðal vinnusvæði og aðkomu að Skógræktinni í Skarðsdal. Þar eru fyrir vinnuskúr og áhaldageymsla ásamt snyrtingu
fyrir starfsfólk og gesti Skógræktarinnar einnig vinnusvæði og gróðursetningarreitir sem búið er og verið er að gróðursetja
í.
2. Grænir blettir merktir sem hluti golfvallar þurfa nánari athugunar við, blettir sunnan merkts bílastæðis golfvallar eru svæði sem
síðastliðin 20-30 ár hafa verið reitir sem skólabörn og skólaárgangar hafa plantað í og ekki verður eyðilagt.
Svæði sem færi undir bílastæði og golfskála þarf einnig að skoða og hvað af plöntum og landssvæði færi úr
skógrækt og hvað þá kæmi í staðinn.
3. Svæði sunnan Leyningsár sem golfklúbburinn hefur hug á að fá er þegar búið að planta í nokkur þúsund
plöntur og er þinglýst með samningi milli Bæjarstjórnar Siglufjarðar og Skógræktarfélags Siglufjarðar,
Skógræktarfélag Íslands ásamt samningi um plöntun Landgræðsluplantna.
Þar þyrfti að taka tillit til hvað færi af trjám undir og hvernig yrði bætt. Á þessu svæði eru einnig rústir og minjar
fyrri búsetu á svæðinu sem þarf að varðveita. Einnig þarf að taka tillit til að þetta sker sundur samfellu í
skógræktarsvæðinu.
4. Skipulag svæðisins þarf að gera ráð fyrir að starfsfólk skógræktarinnar ásamt gestum fólkvangsins komist um
svæðið með tól og tæki bæði til umhirðu og grisjunar ásamt því að njóta þessarar "Perlu Fjallabyggðar".
5. Við gerð slóða og vinnuvega um svæðið þarf að passa upp á að hægt sé að komast um ásamt því að
ræsi eða brýr séu rétt gerð svo ekki skaði gönguleiðir bleikju eins og nú er með ræsið yfir Leyningsá.
6. Skógræktarfélagið vonar að góð samvinna milli aðila geti gert allt svæðið að frábæru útivistarsvæði
fyrir íbúa Fjallabyggðar og gesti. Allt bætt aðgengi um útivistarsvæðið í Hóls og Skarðsdal ásamt lagfæringum og
frágangi á efnisnámum neðan skógræktarinnar er gott mál og ætti að vera dálitíð metnaðarfullt verkefni fyrir
sveitarfélagið. Skógræktarfélagið bendir á að talsverð umferð er um Hólsdalinn sérstaklega á
veiðitíma í Hólsánni svo og berjatímanum í hlíðum fjallanna beggja vegna ásamt hestasporti, göngu og
skíðagöngufólki.
Nefndin hefur farið yfir athugasemdirnar og felur tæknideild að koma með tillögur að svörum.
4. 1201002 - Leyfi fyrir skilti
Steingrímur Óli Hákonarsson fyrir hönd Fiskmarkaðar Siglufjarðar óskar eftir leyfi til að
setja upp merkingu á húsnæði Fiskmarkaðarins að Mánargötu 2-4, Siglufirði. Um er að ræða 2 skilti, annað á suðurgafl
og hitt á vesturgafl húsnæðisins.
Erindi samþykkt.
5. 1112105 - Stígur við Langeyrarveg
Haraldur Marteinsson óskar eftir leyfi fyrir hestamenn að fá að nýta stíg við
Langeyrarveg til útreiðar, tímabundið á meðan mesti snjórinn er.
Nefndin leggur til að leyfa hestamönnum að ríða eftir umræddum stíg til mánaðarmóta febrúar/mars.
6. 1201009 - Búfjárhald
Á fundi nefndarinnar þann 9. desember 2010 var samþykkt eyðublað fyrir umsóknir um
búfjárhald. Síðastliðið haust var auglýst að sækja þyrfti um að halda búfé í Fjallabyggð
samkvæmt samþykkt um búfjárhald í Fjallabyggð.
15 umsóknir bárust.
Egill Rögnvaldsson - 5 sauðfé
Rögnvaldur Þórðarsson - 5 sauðfé
Ólafur H. Marteinsson og fjölsk. - 10 hestar
Jón Árni Konráðsson - 40 sauðfé, 25 hænur og 10 endur
Ingi V. Gunnlaugsson - 7 hestar
Haraldur Björnsson - 80 sauðfé
Helga Lúðvíksdóttir - 8 hestar
Guðni Ólafsson - 2 hestar og 15 sauðfé
Jón Valgeir Baldursson - 10 sauðfé
Daníel Páll Víkingsson - 10 sauðfé
Ásgrímur Pálmason - 7 hestar og 10 sauðfé
Baldur Aadnegard - 10 sauðfé
Óskar Finnsson og fjölsk. - 30 sauðfé
Jónas Baldursson - 15 hestar og 10 sauðfé
Gunnar Þór Magnússon - 10 hestar og 12 sauðfé
Hefur dýraeftirlitsaðili Fjallabyggðar hitt alla umsækjendur og staðfestir að aðstaða til vörslu búfjár sé viðunandi hjá
umsækjendum.
Nefndin samþykkir allar umsóknir að undskildum umsóknum frá Agli Rögnvaldssyni - 5 sauðfé, Rögnvaldi Þórðarsyni - 5
sauðfé og Haraldi Björnssyni - 80 sauðfé. Þar sem fjárhúsið sem hýsir sauðféð rýmir einungis 80 fjár og er
búfjáreftirlitsmanni falið að leita skýringa.
Einnig óskar nefndin eftir greinargerð frá búfjáreftirlitsmanni um hversu margar skepnur rýmist í húsum sem sótt er um leyfi til
búfjárhalds í.
Nefndin áréttar að allir sem halda skepnur utan lögbýlis í Fjallabyggð þurfa að sækja um leyfi til búfjárhalds.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.10.




